Luxor

Goto page index

Page-title

Leigudeild Luxor

Viðskiptavinir leigudeildarinnar eru ekki eingöngu allar sjónvarpsstöðvar landsins heldur koma þeir úr öllum sviðum þjóðfélagsins; stjórnmálaflokkar jafnt sem nemendafélög, veitingastaðir og leikfélög. Tækjalagerinn hefur stækkað gríðarlega á örfáum árum með ört fjölgandi hóp viðskiptavina og ört stækkandi verkefnum. Afmælistónleikar Bubba Morthens þann 6. júní 2006 eru kannski stærsti einstaki viðburður seinni ára, en einnig má nefna árshátíð Icelandair og hátíðarkvöldverð Glitnis í nýju Laugardalshöllinni, sem og afmælishátíð í Samskipum þar sem Elton John kom við sögu og önnur stór verkefni. Tækjabúnaður frá Luxor hefur einnig brugðið birtu á hartnær 30 leiksýningar á þessu leikári, út um allt land, og óteljandi atburðir, tónleikar, fundir, og mannfagnaðir af öllu tagi hafa notið þjónustu leigudeildar Luxor.

Vídeódeild Luxor hefur á að skipa tæknistjórum með yfir 20 ára reynslu og býður meðal annars upp á fullkomnasta upptökubíl landsins, sem miðlaði bæði Eurovision og X Factor til íslenskra sjónvarpsáhorfenda, ásamt flestum stærri sjónvarpsviðburðum síðari ára.

Kvikmyndadeild Luxor er stærsta kvikmyndatækjaleiga Íslands, með fullkominn búnað til auglýsinga og kvikmynda, filmutökuvélar, vídeótökuvélar, ljósabúnað og grip, með áralanga reynslu af innflutningi búnaðar til stærri verkefna.


Search