Page-title
Söludeild Luxor
Meðal stærstu viðskiptavina söludeildar Luxor eru öll atvinnuleikhús landsins, verkfræði- og arkitektastofur, hótel, veitingahús og fjöldamörg félagsheimili og samkomustaðir um land allt. Við erum með mjög breiða og öfluga vörulínu sem hentar hvort sem er litlum áhugaleikhópum eða stærstu tónlistarhúsum. Luxor er til að mynda með sérstaklega sterk fyrirtæki í LED - lýsingu og eru arkitektar og rafmagnshönnuðir meðal áhugasamra samstarfsaðila okkar í þessari grein lýsingar. Tvö af þremur stærstu hreyfiljósafyrirtækjum heims, Vari-Lite og Robe Showlighting, eru sömuleiðis meðal þekktustu fyrirtækja okkar. Loks má geta þess að Luxor er umboðsaðili eins öflugasta LED - skjáafyrirtækis heims, Lighthouse Technologies, en margir þekkja Lighthouse skjáinn við Piccadilly Circus í London. Við erum einnig með ýmsar spennandi og óvenjulegar lausnir við rafræna miðlun upplýsinga sem vert er að skoða.
Alfreð Sturla Böðvarsson sölustjóri alfred@luxor.is 899.2219